Geimstofan
Moya er vefumsjónarkerfi frá Stefnu ehf.
Nýjustu fréttir
-
Nýr starfsmaður á Geimstofunni
Almennt - miðvikudagur 18.jún.08 10:09 - Jón Ingi Sigurðsson - Lestrar 1789
Ráðinn hefur verið til starfa á Geimstofunni nýr starfsmaður að nafni Karl Halldór Reynisson.
Karl eða Kalli eins og hann er kallaður er nýútskrifaður grafískur hönnuður frá Myndlistaskólanum á Akureyri.
Kalli kemur til með að sinna verkefnum í hönnun sem og aðstoða við merkingadeild Geimstofunnar. Kalli hlaut hvatningarverðlaun Myndlistarskólans á Akureyri og útskrifaðist hann með miklum sóma og er hann sterk og góð viðbót við teymi Geimstofunnar.
-
Sandblástursfilmur - Bílamerkingar - Gluggamerkingar - Skilti - Prentun á striga og ljósmyndapappír
Almennt - mánudagur 11.feb.08 11:18 - Jón Ingi Sigurðsson - Lestrar 2863
Geimstofan býður upp á allar lausnir í merkingu á fyrirtækinu þínu og eða bara heima fyrir.
Sandblástursfilmur fyrir
Baðherbergið - Eldhúsið - Forstofuna - Stofuna - Þvottahúsið og Bílskúrinn
Notaðu hugmyndaflugið og við útfærum fyrir þig útlitið eins og þú vilt hafa það.
Höfum einnig hin ýmsu mynstur til að velja úr.
Mikið lita úrval til að blanda með sandblástursfilmum
-
Kung-fú-róní
Almennt - mánudagur 11.feb.08 11:14 - Jón Ingi Sigurðsson - Lestrar 1877
Hér er hægt að sjá nýjustu auglýsinguna sem Geimstofan gerði fyrir Kjarnafæði nýverið.
http://www.geimstofan.is/?mod=video&mod2=view&view=one&id=12