Geimstofan

Moya er vefumsjónarkerfi frá Stefnu ehf.

Flýtilyklar

Um okkur

Geimstofan er alhliða hönnunarhús sem sérhæfir sig í sköpun og framsetningu hugmynda af öllu tagi, sérstaklega þó á sviði auglýsinga og markaðsmála. Það er jafnvígt á notkun hefðbundinna miðla og öðrum algengum miðlum sem bjóðast í hinum tæknivædda heimi í dag.

Öll grafísk hönnun eins og heimasíðugerð, bréfsefni, blaðaauglýsingar, bæklingar, ársskýrslur, og svo mætti lengi telja, eru meðal verkefna sem Geimstofan leysir. Einnig getur stofan gert allar tegundir lifandi auglýsinga, sjónvarps- og útvarpsauglýsingar.

Ef þú vilt auglýsa eða markaðssetja á hagkvæman og markvissan hátt, getur þú leitað til Geimstofunnar.

Birtingaþjónusta, forritun, almannatengsl, hreyfimyndaframleiðsla og aðrir sérhæfðir angar auglýsingageirans verða unnir í samstarfi við fyrirtæki sem sérhæfa sig í slíkri þjónustu. Með þessu móti veitir fyrirtækið alla þá þjónustu sem hugurinn girnist.









Innskráning

  • Home
  • Print
  • Email

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.7 2006 - Stefna ehf